Brunnupphækkun (PP) með stiga 1000 h1,00 m
Brunnupphækkun úr pólýprópýleni (PP) sem notuð er til að hækka brunna á öruggan og góðan hátt. Efnið er létt og öflugt sem gerir upphækkunina auðvelda að vinna með í öllum aðstæðum.Brunnupphækkunin er með innbyggðum stiga sem tryggir öruggan aðgang fyrir skoðun og viðhald. Upphækkanirnar eru fyrir brunna með 1000 mm þvermál og eru einfaldar í uppsetningu.Varan er fáanleg í hæðum 25, 50, 75 og 100 cm og allar útgáfur eru með stiga.