Stjórnendur semja um kaup á Málmsteypunni

12.02.26

Samið hefur verið um kaup á öllu hlutafé Málmsteypu Þorgríms Jónssonar ehf. Kaupendur eru Einar Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri, og Anton Reynir Hafdísarson, sölu- og fjármálastjóri, ásamt MF4 hs., sjóði í rekstri Ísafold Capital Partners.

Með samkomulaginu taka stjórnendur þátt í eignarhaldi fyrirtækisins sem þeir hafa unnið að því að þróa. Kaupin byggja á þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað undanfarin ár, bæði í íslensku framleiðslunni og í innflutningi á vörum fyrir innviðaframkvæmdir.

Á eignarhaldstíma Alfa Framtaks hefur verið fjárfest í framleiðslubúnaði, vöruúrval breikkað og unnið að umbótum á verkferlum. Sá grunnur nýtist við áframhaldandi þróun Málmsteypunnar sem framleiðanda og birgis fyrir verktaka, sveitarfélög, veitur og iðnað.

Áherslan í áframhaldandi uppbyggingu er að gera viðskiptavinum auðveldara að leysa efnisþörf verkefna sinna. Þar fara saman þekking á vörunum, skýr upplýsingagjöf og skipulagning afhendinga. Innlend framleiðsla brunnloka, niðurfalla og annarra steyptra vara er mikilvægur hluti þeirrar starfsemi.

Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og öðrum fyrirvörum. Samkvæmt tilkynningu um samkomulagið er stefnt að afhendingu félagsins í janúar 2026. Við hlökkum til að halda áfram að byggja upp Málmsteypuna með starfsfólki okkar og samstarfsaðilum.

Kynntu þér Málmsteypuna og starfsfólkið

Aðrar fréttir

Stálvörur verða endursöluaðili Málmsteypunnar á Norðurlandi

13.11.26

Íslenskt kantsteinsniðurfall frá Málmsteypunni

12.08.26

Hitaveitulausnir frá Isoplus hjá Málmsteypunni

12.11.25

Nýr vefur Málmsteypunnar fer í loftið

07.09.25

Fjárfest í framtíð íslenskrar málmsteypu

12.07.24

Málmsteypan 80 ára – frá pönnukökupönnum til innviða

12.03.24

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum