Stálvörur verða endursöluaðili Málmsteypunnar á Norðurlandi

13.11.26

Við höfum undirritað samkomulag við Stálvörur um að fyrirtækið verði endursöluaðili Málmsteypunnar á Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra. Með samstarfinu eflum við aðgengi að vörum okkar og þjónustu á svæðinu.

Stálvörur munu vera með lager og afgreiðslu á vörum Málmsteypunnar á Akureyri. Viðskiptavinir á Norðurlandi fá þannig staðbundna afgreiðslu og geta nálgast efni nær framkvæmdum sínum.

Saman munum við bjóða upp á heildarlausnir fyrir veitur, sveitarfélög, verktaka og íslenskan iðnað. Samstarfið styður við þá áherslu Málmsteypunnar að þjónusta uppbyggingu og viðhald innviða um land allt með viðeigandi vörum og aðstoð við efnisöflun.

Við hlökkum til samstarfsins við Stálvörur og til að þjónusta viðskiptavini okkar á Norðurlandi í sameiningu.

Aðrar fréttir

Íslenskt kantsteinsniðurfall frá Málmsteypunni

12.08.26

Stjórnendur semja um kaup á Málmsteypunni

12.02.26

Hitaveitulausnir frá Isoplus hjá Málmsteypunni

12.11.25

Nýr vefur Málmsteypunnar fer í loftið

07.09.25

Fjárfest í framtíð íslenskrar málmsteypu

12.07.24

Málmsteypan 80 ára – frá pönnukökupönnum til innviða

12.03.24

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum