Málmsteypan 80 ára – frá pönnukökupönnum til innviða

12.03.24

Málmsteypa Þorgríms Jónssonar fagnar áttatíu ára afmæli árið 2024. Fyrirtækið var stofnað árið 1944, þegar vöruskortur stríðsáranna kallaði á nýjar leiðir til að útvega nauðsynlega hluti hér á landi.

Feðgarnir Jón Jónsson og Þorgrímur Jónsson hófu starfsemina í litlum skúr í Laugarnesi. Þeir bræddu málma og steyptu meðal annars potta og pönnukökupönnur. Með tímanum breyttust verkefnin og framleiðslan færðist í auknum mæli yfir í vörur fyrir sveitarfélög, verktaka og iðnað.

Brunnlok, karmar og niðurföll urðu mikilvægur hluti starfseminnar. Það eru vörur sem flestir ganga eða aka fram hjá án þess að velta sérstaklega fyrir sér hvaðan þær koma. Á bak við þær liggur þó íslensk iðnþekking sem hefur byggst upp og þróast milli kynslóða.

Á afmælisárinu horfum við bæði til sögunnar og þeirra verkefna sem fram undan eru. Þekking á steypu og efnisvinnslu er áfram undirstaða framleiðslunnar, samhliða innflutningi á vörum fyrir innviðaframkvæmdir.

Við þökkum starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir þátt þeirra í sögu Málmsteypunnar. Áttatíu ára starf væri ekki mögulegt án fólksins sem hefur unnið hér og þeirra sem hafa treyst okkur fyrir verkefnum sínum.

Kynntu þér sögu og framleiðslu Málmsteypunnar

Aðrar fréttir

Stálvörur verða endursöluaðili Málmsteypunnar á Norðurlandi

13.11.26

Íslenskt kantsteinsniðurfall frá Málmsteypunni

12.08.26

Stjórnendur semja um kaup á Málmsteypunni

12.02.26

Hitaveitulausnir frá Isoplus hjá Málmsteypunni

12.11.25

Nýr vefur Málmsteypunnar fer í loftið

07.09.25

Fjárfest í framtíð íslenskrar málmsteypu

12.07.24

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum