Vörur / Fráveita

Heildarlausnir í fráveitu

Hjá Málmsteypunni fæst heildstætt vöruframboð fyrir fráveitu: rör, tengi, brunnar, sandföng og lausnir fyrir miðlun ofanvatns — hvort sem um er að ræða minni lagnavinnu eða umfangsmikil innviðaverk.

Við vinnum náið með verktökum, sveitarfélögum, veitufyrirtækjum og hönnuðum. Markmiðið er að einfalda undirbúning og innkaup með góðu vöruúrvali, sterkum lager og aðstoð sem nýtist frá fyrstu yfirferð til afhendingar.

Rörastærðir
150–2.400mm innanmál (ID)
Brunnar
ID 400–2.400stútar allt að 2.000 mm
Á lager
≤ 600 mmMiðhraun 6, Garðabær
Sérsmíði
4–6 vikursérpöntun 2–4 vikur
Yfirlit

Val á rörakerfi

Val á lausn tekur mið af notkun, lagnastærð, dýpi, jarðvegi og álagi á hverjum stað. Hér er stutt samantekt til að finna rétta kerfið áður en farið er í einstakar vörur.

KerfiNotkunStærðir (ID)ByggingAfhending
K2-KanFráveita og ofanvatn í byggingar-, sveitarfélaga- og innviðaverkefnum150–1.000 mmTvíveggja PP, rifflað að utan, slétt að innan≤ 600 mm á lager
K2-Kan XXLStór fráveitukerfi og megilagnir1.000–2.400 mmTvíveggja PPSérpöntun 2–4 vikur
KGTengilagnir við hús og minni fráveitulagnir≤ 200 mm
tengi ≤ 400 mm
Slétt PPAlgengustu stærðir á lager
DrenrörJarðvatn við húsgrunna, lóðir, stoðveggi og vegiSjá vöruyfirlitSafnar og leiðir frá jarðvatniÁ lager
01 — Rör og tengihlutir

Fráveitukerfi

Málmsteypan býður rörakerfi fyrir skólp, regnvatn, dren og aðrar lagnir í jörðu — frá hefðbundnum tengilögnum við hús yfir í stór fráveitukerfi fyrir sveitarfélög, veitur og umfangsmikil innviðaverk.

K2 fráveituefni

Á lager ≤ 600 mmSérpöntun 2–4 vikur

K2-Kan eru tvíveggja PP-rör, rifflað að utan til að þola álag og slétt að innan til að tryggja gott flæði. Rörin eru ætluð fyrir fráveitu og ofanvatn.

Boðið er upp á tengihluti og sérlausnir til að tengja rörin saman og laga kerfið að stefnu, hæð og öðrum aðstæðum verkefnisins.

Efni
PP, tvíveggja
K2 stærðir
150–1.000 mm innanmál
K2 XXL
1.000–2.400 mm innanmál
Lager
Stærðir allt að 600 mm að jafnaði
Afhending
Stærri rör og tengi 2–4 vikur
Rör K2
ID 150–1000
K2 XXL
ID 1000–2400
Múffur
Tenging
Beygjur
Stefnubreyting
Greinar
Aftenging
Minnkun
Stærðaskipti
Breytistykki
ID / OD
Tappi og lok
Endafrágangur
Sjá allar K2 vörur

KG fráveituefni

Algengustu stærðir á lager

KG eru slétt PP-rör sem tryggja gott flæði og eru ætluð fyrir fráveitu og ofanvatn í byggingar-, sveitarfélaga- og innviðaverkefnum.

Fjölbreytt úrval tengihluta gerir kleift að laga kerfið að stefnu, hæð og öðrum aðstæðum verkefnisins.

Efni
PP, slétt
Rör
Allt að 200 mm
Tengihlutir
Allt að 400 mm
Afhending
Stærri rör og tengi sérpöntuð
Rör KG
≤ 200 mm
Múffa
Tenging
Beygja
Stefnubreyting
Grein
Aftenging
Minnkun
Stærðaskipti
Lok
Endafrágangur
Sjá allar KG vörur

Drenrör

Á lager

Drenrör safna og leiða frá jarðvatn og annað vatn sem getur safnast í jarðvegi. Þau eru meðal annars notuð við húsgrunna, lóðir, stoðveggi og vegi til að draga úr vatnssöfnun og stýra vatni á öruggan hátt frá mannvirkjum.

Notkun
Húsgrunnar, lóðir, stoðveggir, vegir
Verkefni
Draga úr vatnssöfnun við mannvirki
Drenrör
Jarðvatn
Sjá öll drenrör
02 — Brunnar

Brunnar og brunnbotnar

Brunnar veita aðgengi að lögnum og tengja þær saman. Val á stærð og útfærslu ræðst af stærð lagna, fjölda og legu tenginga, lagnadýpi, aðgengiskröfum og því hvort þörf sé á niðurstigi í brunninn.

Brunnbotnar

ID 400 · 600 · 1000 á lagerSérsmíði 4–6 vikur

Staðlaðar stærðir eru 400, 600 og 1000 mm að innanmáli, með stútum beint í gegn eða í kross fyrir lagnir frá 150–400 mm. Minni brunnar eru almennt notaðir þar sem skoðun og hreinsun fer fram frá yfirborði, stærri brunnar þar sem þörf er á meira vinnurými eða krafa um stiga.

Einnig eru fáanlegir brunnar án stúta sem hægt er að bora inn á eftir þeirri stærð, stefnu og hæð tenginga sem verkefnið krefst.

Lager
ID 400 / 600 / 1000, stútar 150–400 mm
Sérsmíði
Innanmál allt að 2.400 mm
Stútar
Rör allt að 2.000 mm í þvermál
> ID 1000
Afhent í heilu lagi með keilu
Afhending
Sérpöntun og sérsmíði 4–6 vikur
Brunnur ID400
Lager
Brunnbotn ID600
Lager
Brunnbotn ID1000
Lager
Brunnur án stúta
Borað á verkstað
Sjá alla brunnbotna
Athugið

OD-stútar á lagervöru — notið breytistykki

Brunnbotnar af lager eru með OD-stútum, þar sem stærð stútsins miðast við ytra þvermál hans. Þegar tengja á rör sem eru stærðargreind eftir innra þvermáli, eins og K2 rör, eru notuð viðeigandi breytistykki. Einnig er hægt að setja minnkanir eða beygjur beint við brunnstútinn þegar aðstæður leyfa.

03 — Sérpantanir

Sérpantanir á brunnum

Þegar staðlaðar útfærslur henta ekki er hægt að sérpanta brunna og brunnbotna samkvæmt forsendum verkefnisins. Það á meðal annars við þegar þörf er á stútum fyrir lagnir stærri en 400 mm.

Sérsmíðaðir brunnar

Sérsmíði 4–6 vikur

Útfærslan getur tekið mið af innanmáli og heildarhæð brunnsins, rörastærðum, fjölda tenginga, gráðum og hæðarkótum inn- og útrása.

Brunnar stærri en 1.000 mm að innanmáli eru sérsmíðaðir og afhentir í heilu lagi. Þeir geta verið allt að 2.600 mm að innanmáli og henta meðal annars fyrir stórar lagnir, margar innrásir og flóknar tengingar.

Innanmál
Allt að 2.600 mm
Stútar
Lagnir stærri en 400 mm
> ID 1000
Sérsmíðað, afhent í heilu lagi
Forsendur
Rörastærðir, fjöldi tenginga, gráður
Hæðarkótar
Inn- og útrásir samkvæmt teikningu
Afhending
Sérsmíði 4–6 vikur
Sérsmíðaður brunnur
ID allt að 2.600
Brunnbotn með sérstútum
Yfir 400 mm
Ferlið

Yfirferð teikninga fyrir pöntun

Málmsteypan aðstoðar við yfirferð teikninga og brunnaskráa áður en pöntun er staðfest. Brunnurinn er síðan framleiddur hjá birgjum okkar samkvæmt staðfestum forsendum verkefnisins.

04 — Uppbygging

Hæðaraðlögun og toppfrágangur

Aðferðin við hæðaraðlögun ræðst af stærð og uppbyggingu brunnsins. Hér er uppbygging 1000 mm brunns frá botni upp í götu, ásamt einingunum sem til þarf.

GATA saga ≤25cm 600 mm aðgangsop ID 1000 mm stútar 150–400 mm brunngúmmí á öllum samskeytum
Þverskurður — 1000 mm brunnur

Uppbygging frá botni upp í götu

Á milli allra eininga skal nota brunngúmmí sem tryggir þéttni og að brunnurinn sé vatnsheldur.

  1. Brunnbotn ID 1000Stútar beint í gegn eða í kross, 150–400 mm. Borað á verkstað þegar brunnur er án stúta.
  2. Brunnupphækkanir — 25, 50, 75 og 100 cmMeð innbygðum stiga og múffu. Þeim er staflað þar til fyrirhugaðri heildarhæð er náð.
  3. Brunnkeila — minnkar ID 1000 í 600 mm aðgangsopMeð innbygðum stiga. Hægt að saga allt að 25 cm af keilunni til að fínstilla hæðina.
  4. Topphringur 1100/600, 170 mmNauðsynlegur til að tryggja D400 álag sem krafist er í umferðargötum.
  5. Karmur og brunnlokEf ekki er þörf á D400 álagi má setja karm og lok beint á brunninn — við mælum þó með steyptum upphækkunarhringjum í þeim tilvikum.

Einingar í hæðaraðlögun

Á lager

400 og 600 mm brunnar eru hækkaðir með upphækkunarröri sem er sagað í rétta lengd áður en gengið er frá yfirborði með topphringi og brunnloki.

ID 400 / 600
Upphækkunarrör, sagað í rétta lengd
ID 1000
Brunnupphækkun 25 / 50 / 75 / 100 cm
Keila
ID 1000 → 600 mm, má saga 25 cm
Topphringur
1100/600 mm, hæð 170 mm — D400
Þétting
Brunngúmmí á öllum samskeytum
Brunnupphækkun
25–100 cm
Brunnkeila
1000 → 600
Topphringur
1100/600 · 170
Brunnlok og flotkarmur úr járnsteypu frá Málmsteypunni
Brunnlok
D400
Steyptar hækkanir
Upphækkunarhringir
Brunngúmmí
Þétting
Sjá allan toppfrágang
05 — Yfirborðsvatn

Sandföng og niðurföll

Sandföng taka við yfirborðsvatni og halda eftir sandi, seti og öðrum föstum efnum áður en vatnið rennur inn í fráveitukerfið. Þannig minnkar hætta á uppsöfnun og stíflum og hreinsun verður einfaldari.

Sandföng

Á lager

Val á sandfangi ræðst einkum af áætluðu vatnsmagni, stærð tengilagnar, þörf fyrir söfnunarrými og aðgengi til tæmingar og hreinsunar.

Sandföngin eru með stillanlegu teleskópröri sem má hækka að þörfum. Ef þörf er á vatnslás er hægt að útbúa hann með viðeigandi beygjum.

Söfnunarrými
40 – 200 L
Hæðarstilling
Stillanlegt teleskóprör
Vatnslás
Útbúinn með viðeigandi beygjum
Yfirborð
Niðurföll og kúluristar passa beint ofan í
SandfangTengingRýmiHæð
250/160 teleskóp160 mm40 L1,0 / 0,8 + 0,5
400/160160 mm80 L1,5 m
K2 600/200200 mm200 L2,0 m
Sandfang 250/160
40 L
Sandfang 400/160
80 L
Sandfang K2 600/200
200 L
Niðurfall úr járnsteypu frá Málmsteypunni
Niðurfall 24×24
V-laga · St 190
Kúlurist
400 / 600 mm
Sjá öll sandföng
06 — Tengingar

Samtengi

Samtengi tengja saman rör af mismunandi gerðum, úr ólíkum efnum og með mismunandi þvermál. Þau henta bæði við nýlagnir og við viðgerðir eða endurnýjun eldri lagnakerfa.

MAC og MSC samtengi

Fjölbreytt þvermál á lager

MAC- og MSC-samtengi eru sveigjanleg tengi sem henta þegar hefðbundnar múffutengingar eiga ekki við — til dæmis við viðgerðir og endurnýjun, þegar tengja þarf nýjar plastlagnir við eldri lagnir úr steypu eða steinleir.

Sumar útfærslur geta tengt saman rör þótt töluverður munur sé á ytra þvermáli þeirra.

Efni
EPDM-gúmmí með ryðfríum stálklemmum
Notkun
Plast ↔ steypa, steinleir og eldri lagnir
Þvermál
Fjölbreytt úrval, mismunandi OD leyft
Samtengi fyrir
MAC samtengi
EPDM
MSC samtengi
EPDM
Sjá öll samtengi
07 — Miðlun ofanvatns

Drenbox

Drenbox er einingakerfi sem tekur við ofanvatni og geymir það tímabundið neðanjarðar. Kerfið er byggt úr HYDRO-BOX einingum sem hægt er að laga að því rúmmáli, rými og frárennsli sem verkefnið krefst.

HYDRO-BOX einingar

Á lager

Einingarnar eru tengdar saman með tengiklemmum og raðað upp í þá lengd, breidd og hæð sem þarf til að ná tilskildu miðlunarrými. Hliðar- og endalok loka kerfinu og sérstakar tengingar eru notaðar fyrir inn- og útrásir. Einnig er gert ráð fyrir aðgengi til skoðunar og hreinsunar.

Eining 800×800×800
0,473 m³
Eining 800×400
0,24 m³
Eining 800×800 h=330
0,211 m³
Tenging
Tengiklemma 76/36/32
Eftirlit
Eining með sléttum botni, 0,473 m³
Hydro-box 800×800×800
0,473 m³
Eftirlitseining
Sléttur botn
Sjá allt Drenbox
Útfærsla A

Sitrun í jarðveg

Kerfið er umlukið vatnsgegndræpum jarðvegsdúk. Dúkurinn kemur í veg fyrir að jarðvegsefni berist inn í einingarnar en hleypir vatninu út í nærliggjandi jarðveg.

Dúkur — vatnsgegndræpur
Útfærsla B

Lokuð miðlun

Kerfið er umlukið þéttum dúk. Vatnið safnast í kerfinu og rennur áfram um stýrða útrás.

Dúkur — þéttur · stýrð útrás
Aðstoð

Þarftu aðstoð við val á lausn?

Sendu okkur lagnastærðir, dýpi og fjölda tenginga og við förum yfir hvað er til á lager, hvað þarf að sérpanta og hvaða breytistykki þarf á milli kerfa. Sérsmíðaðir brunnar eru teiknaðir eftir rörastærðum, tengihornum og hæðarkótum verkefnisins.

Mán–fim 8–16 · Fös 8–15 · Miðhraun 6, 210 Garðabær

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum