Upphækkunarhringur gat 600 h200mm 800×600
Upphækkunarhringir eru steyptir hringir sem notaðir eru til að stilla hæð brunna og tryggja nákvæman og varanlegan frágang við yfirborð. Þeir auðvelda aðlögun að endanlegri hæð malbiks, hellna eða annarra yfirborða og spara tíma við uppsetningu. Upphækkunarhringirnir eru sterkbyggðir og henta vel í gatnagerð. Fáanlegir í hæðum 3, 5, 10 og 20 cm.