Rör XXL Vegræsi
K2-Kan XXL tvíveggja fráveiturör frá Kaczmarek eru úr PP eða PEHD með sléttum innri vegg og rifluðum ytri vegg sem veitir mikinn styrk og burðarþol. Rörin uppfylla alla helstu evrópska og alþjóðlega staðla fyrir fráveitu- og drenlagnir, m.a. EN 13476 og EN 476, og eru fáanleg í styrktarflokkum SN2, SN4, SN6, SN8 og SN16. Þau henta vel í stórar fráveitu-, regnvatns- og drenlagnir, sem og í ræsi undir vegi og til smíði brunna og tanka. Rörin eru sérpöntun svo endilega hafa samband til að fá frekari upplýsingar