Rör – Vegræsi

K2-Kan vegræsisrör frá Kaczmarek eru tvíveggja rör úr PP (pólýprópýlen) með sléttum innri vegg og rifluðum ytri vegg sem tryggir mikinn styrk, burðarþol og stöðugleika í krefjandi aðstæðum. Rörin eru sérstaklega hönnuð fyrir ræsi undir vegi, þar sem mikil umferðarálög, jarðvegsþrýstingur og veðurfar gera miklar kröfur til efnis og uppsetningar.

Vegræsisrörin uppfylla helstu evrópska og alþjóðlega staðla fyrir fráveitu- og drenlagnir, þar á meðal EN 13476 og EN 476, og eru fáanleg í ýmsum stærðum og styrktarflokkum, eftir þörfum hvers verkefnis. Létt þyngd röranna auðveldar flutning og uppsetningu, án þess að draga úr styrk eða endingargæðum.

Vegræsisrör eru sérpöntun, svo endilega hafið samband við Málmsteypuna til að fá nánari upplýsingar og ráðgjöf varðandi lausnir fyrir ykkar verkefni.

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum