Flotniðurfall er hannað fyrir notkun í malbikuðum flötum þar sem þörf er á öruggri og endingargóðri frárennslislausn. Kanturinn er sérstaklega hannaður þannig að hann flýtur í malbikinu, sem tryggir góða aðlögun að yfirborðinu og jafna álagsdreifingu. Flotniðurfallið hentar vel í götur, bílastæði og önnur svæði með miklu álagi. Niðurföll frá Málmsteypunni eru steypt úr endurunnu brotajárni sem safnast hér á Íslandi. Með notkun innlends brotajárns og endurnýjanlegrar orku hafa þau verulega lægra kolefnisspor en sambærilegar innfluttar vörur.
| Efni | Steypujárn |
| Staðall | ISO 185 Grade 200 |
| Íslensk framleiðsla | Já |
| Framleiðandi | Málmsteypan |
| Ristastærð (BxL) | 300x300 mm |
| Tegund vöru | Niðurfall |
| Þvermál Hólks | 240 mm |