Heildarlausnir í rafmagni og fjarskiptum
Hjá Málmsteypunni fæst heildstætt vöruframboð fyrir rafmagns- og fjarskiptalagnir í jörðu. Úrvalið nær yfir ídráttarrör, fjölrása lagnastokka, aðgangsbrunna, hlera og fylgihluti fyrir minni lagnavinnu jafnt sem umfangsmikil innviðaverkefni.
Við vinnum náið með rafverktökum, fjarskiptafyrirtækjum, sveitarfélögum, veitufyrirtækjum og hönnuðum. Markmiðið er að einfalda undirbúning og innkaup með góðu vöruúrvali og aðstoð við val á rörum, brunnum, hlerum og öðrum einingum kerfisins.
- Ídráttarrör
- 25–225mm ytra þvermál
- MULTIduct
- 4 / 6 / 9rásir í einingu
- Brunneiningar
- 600–1.200mm á lager
- Álagsflokkar
- B125 / D400karmar og hlerar
Val á kerfi
Val á lausn tekur mið af notkun, fjölda kapla, dýpi, umferðarálagi og aðgengi á hverjum stað. Hér er stutt yfirlit yfir helstu kerfi í flokknum og hvað einkennir þau.
| Kerfi | Notkun | Stærðir | Bygging | Afhending |
|---|---|---|---|---|
| Ídráttarrör | Kaplar og strengir í jörðu í götum, lóðum og byggingum | 25–225 mm (OD) | Rifflaður ytri veggur, sléttur innri | 6 m lengdir og rúllur |
| MULTIduct lagnastokkar | Margar kapalrásir í einni einingu og þéttari lagnaleiðir | 4, 6 og 9 rásir · 4 rásir XL | Þrýstitengingar, sléttar rásir | Einingar um 1 m |
| STAKKAbox brunnakerfi | Aðgangur til ídráttar, tenginga, skoðunar og viðhalds | Utility 450 × 450 – ULTIMA sérsniðið | Einingabyggt · 150 mm einingar | RapidSTACK á lager · annað sérpantað |
| Karmar og hlerar | Lokun brunna og öruggt aðgengi að lögnum | 600 × 600 – 1.200 × 1.200 mm | Járnsteypa · B125 og D400 | Íslensk framleiðsla og innflutt |
Ídráttarrör
Ídráttarrör vernda rafmagns- og fjarskiptalagnir í jörðu og mynda örugga lagnaleið fyrir kapla og strengi. Þau eru meðal annars notuð í götum, lóðum, byggingum og öðrum innviðaverkefnum.
Ídráttarrör
Helstu ídráttarrör Málmsteypunnar eru með riffluðum ytri vegg sem veitir styrk og sléttum innri vegg sem auðveldar ídrátt og blástur kapla. Úrvalið nær yfir rör frá 25 upp í 225 mm að ytra þvermáli, í mismunandi litum og útfærslum.
Rörin eru fáanleg í sex metra lengdum og rúllum eftir stærð og notkun. Einnig eru fáanlegar múffur, gúmmíþéttingar, tappar og rörafestingar fyrir helstu stærðir.
- Ytra þvermál
- 25–225 mm
- Bygging
- Rifflaður ytri veggur, sléttur innri
- Lengdir
- 6 m lengdir og rúllur
- Útfærslur
- Mismunandi litir og gerðir
- Fylgihlutir
- Múffur, gúmmíþéttingar, tappar, rörafestingar
Lagnastokkar
MULTIduct frá Cubis er fjölrása lagnakerfi sem sameinar nokkrar kapalrásir í eina sterka og létta einingu. Kerfið kemur í stað hefðbundinna röraþyrpinga og getur minnkað umfang skurða, einfaldað uppsetningu og dregið úr efnisnotkun og vinnu á verkstað.
MULTIduct fjölrása lagnastokkar
Einingarnar eru um einn metri að lengd, tengjast saman með einföldum þrýstitengingum og eru sléttar að innan til að auðvelda ídrátt og blástur kapla. Kerfið hefur mikinn styrk og má, þegar hönnun og aðstæður leyfa, leggja án steypuumgjarðar eða sérstaks fyllingarefnis.
MULTIduct fæst í fjögurra, sex og níu rása útfærslum, auk stærri fjögurra rása XL-útfærslu. Einnig eru fáanleg tengi, lok, beygjur og millistykki yfir í hefðbundin ídráttarrör og aðgangsbrunna.
- Framleiðandi
- Cubis Systems
- Rásir
- 4, 6 og 9 — auk 4 rása XL
- Einingalengd
- Um 1 m
- Tengingar
- Þrýstitengingar milli eininga
- Innra byrði
- Slétt fyrir ídrátt og blástur
- Fylgihlutir
- Tengi, lok, beygjur og millistykki
Hefðbundin röraþyrping
Nokkur ídráttarrör eru lögð saman í skurði, hvert um sig fest og umlukið fyllingarefni. Útfærslan er þekkt og sveigjanleg en krefst meira rýmis í skurði og meiri vinnu á verkstað.
MULTIduct fjölrása stokkur
Rásirnar koma samsettar í einni einingu sem tengist með þrýstitengingum. Umfang skurða getur minnkað og uppsetning einfaldast — og þegar hönnun og aðstæður leyfa má leggja án steypuumgjarðar.
Aðgangsbrunnar
Aðgangsbrunnar veita aðgengi að rafmagns- og fjarskiptalögnum til ídráttar, tenginga, skoðunar og viðhalds. Málmsteypan býður einingabyggða STAKKAbox-brunna frá Cubis sem eru léttir, fljótlegir í uppsetningu og hægt að aðlaga að stærð og dýpt verkefnisins. Úrvalið nær yfir RapidSTACK, STAKKAbox Utility og ULTIMA Connect fyrir stærri eða sérsniðnar lausnir.
STAKKAbox RapidSTACK
RapidSTACK er sveigjanlegt brunnakerfi sem hentar fyrir rafmagn, fjarskipti, gagnaver og önnur innviðakerfi. Brunnarnir eru byggðir úr 150 mm háum einingum úr glertrefjastyrktu plastefni sem staflað er saman þar til fyrirhugaðri dýpt er náð.
Hver hæð er sett saman úr fjórum hliðareiningum sem tengjast með pinnum, róm og skinnum. Kerfið má flytja ósamsett á verkstað, sem sparar rými við flutning og geymslu og auðveldar uppsetningu þar sem aðgengi að stórum tækjum er takmarkað.
Hægt er að saga eða bora op fyrir ídráttarrör og lagnastokka með hefðbundnum verkfærum. Einnig má byggja brunn utan um lagnir sem þegar eru til staðar án þess að rjúfa þær eða færa. Algengar brunneiningar á lager eru 600, 900 og 1.200 mm, en aðrar stærðir eru fáanlegar eftir þörfum.
RapidSTACK má nota við umferðarsvæði allt að álagsflokki D400 samkvæmt EN 124, þegar réttur hleri, undirstaða og frágangur eru valin fyrir aðstæður.
- Efni
- GRP, glertrefjastyrkt plastefni
- Einingahæð
- 150 mm, staflað í dýpt
- Samsetning
- Fjórar hliðareiningar · pinnar, ró og skinnur
- Lengdir á lager
- 600, 900 og 1.200 mm
- Op fyrir lagnir
- Sagað eða borað á verkstað
- Álag
- Allt að D400 skv. EN 124
STAKKAbox Utility
STAKKAbox Utility er létt og einingabyggt brunnakerfi fyrir minni og staðlaðri aðgangsbrunna. Kerfið er byggt úr 150 mm háum einingum úr endurvinnanlegu pólýprópýleni sem staflast saman þar til réttri dýpt er náð. Brunnarnir fást í stærðunum 450 × 450, 600 × 450 og 600 × 600 mm.
Einingarnar eru með tilbúnum opum fyrir 110 mm ídráttarrör og merktum borpunktum fyrir aðrar stærðir, sem einfaldar tengingar og aðlögun á verkstað. Einnig er hægt að fá kerfið með samsettum karmi og hlera sem ryðgar ekki og leiðir ekki rafmagn.
- Efni
- Endurvinnanlegt pólýprópýlen
- Einingahæð
- 150 mm, staflað í dýpt
- Stærðir
- 450 × 450 · 600 × 450 · 600 × 600 mm
- Op
- Tilbúin fyrir 110 mm rör · merktir borpunktar
- Valkostur
- Samsettur karmur og hleri — ryðgar ekki og leiðir ekki rafmagn
STAKKAbox ULTIMA Connect
ULTIMA Connect er ætlað fyrir stærri eða sérsniðna aðgangsbrunna þar sem þörf er á óhefðbundnum stærðum, miklu rými eða mikilli burðargetu. Kerfið er sett saman úr 150 mm háum horn- og hliðareiningum úr glertrefjastyrktu plastefni sem tengjast með pinnum og staflast upp í þá stærð og dýpt sem verkefnið krefst.
Einingarnar eru léttar og hægt er að flytja þær ósamsettar til að nýta flutningsrými betur. Op fyrir rör og lagnastokka eru mynduð á verkstað og einnig er hægt að byggja kerfið utan um nýjar eða fyrirliggjandi lagnir.
ULTIMA Connect hentar meðal annars fyrir stóra kapla, háspennutengingar, gagnaver og önnur krefjandi innviðaverkefni. Með réttri hönnun, hlera og uppsetningu má nota kerfið við álagsaðstæður allt að F900 samkvæmt EN 124.
- Efni
- GRP, glertrefjastyrkt plastefni
- Einingar
- 150 mm háar horn- og hliðareiningar
- Stærðir
- Sérsniðnar eftir verkefni
- Op fyrir lagnir
- Mynduð á verkstað
- Notkun
- Stórir kaplar, háspenna, gagnaver
- Álag
- Allt að F900 skv. EN 124
Við veljum brunnakerfið með þér
Málmsteypan aðstoðar við val á brunnakerfi, stærð, dýpt, tengingum og hlera út frá forsendum hvers verkefnis. Álagsflokkur brunnsins ræðst af hlera, undirstöðu og frágangi og skal alltaf valinn í samræmi við hönnun.
Aðgangshlerar
Aðgangshlerar loka brunnum og tryggja öruggan aðgang að rafmagns- og fjarskiptalögnum. Val á hlera ræðst meðal annars af stærð brunnsins, staðsetningu, umferðarálagi og aðgengiskröfum. Úrvalið nær yfir bæði innfluttar lausnir og hlera sem framleiddir eru hjá Málmsteypunni úr endurunnu brotajárni.
Hlerar eru meðal annars fáanlegir í álagsflokkunum B125 og D400. B125 hentar þar sem umferðarálag er minna, en D400 er ætlað fyrir götur og önnur svæði þar sem þung ökutæki fara um. Ávallt skal velja burðarflokk í samræmi við hönnun og aðstæður á hverjum stað.
Karmar og lok
Gagnaveitulok Málmsteypunnar eru 900 × 600 mm með tveimur 450 × 600 mm lokum sem passa beint ofan á viðeigandi brunneiningar. Tvö minni lok auðvelda meðhöndlun og aðgengi og hægt er að bæta við milliplötu eftir þörfum. Karmur og lok eru framleidd á Íslandi úr endurunnu brotajárni og uppfylla efnisstaðal ISO 185 Grade 200 — framleitt með endurnýjanlegri orku og því með lægra kolefnisspor en sambærilegar innfluttar vörur.
Auk þess bjóðum við standkarma og lok í fjölbreyttum stærðum og útfærslum fyrir rafmagns- og fjarskiptakerfi. Meðal algengra stærða eru 600 × 600, 900 × 600, 900 × 900, 1.200 × 600, 1.200 × 900 og 1.200 × 1.200 mm. Hægt er að velja á milli mismunandi efna, burðarflokka og gerða loka eftir staðsetningu og kröfum verkefnisins — við val þarf að tryggja að karmur, lok, brunnur og frágangur yfirborðs myndi saman heildstæða lausn.
- Gagnaveitulok
- 900 × 600 mm · tvö 450 × 600 mm lok
- Algengar karmstærðir
- 600 × 600 – 1.200 × 1.200 mm
- Álagsflokkar
- B125 og D400
- Efni
- Endurunnið brotajárn · ISO 185 Grade 200
- Valkostir
- Milliplata og sérmerkingar
- Einnig í boði
- Innfluttar lausnir í öðrum útfærslum
B125
D400
Nánast allar gerðir karma og loka fást sérpantaðar
Utan lagerúrvalsins pöntum við karma og lok eftir kröfum verkefnisins — meðal annars lok með lokunarbúnaði og læsingu, sérstærðir, aðra burðarflokka, sérmerkingar og aðrar útfærslur á yfirborði og festingum. Sendu okkur kröfur verkefnisins og við finnum lausn og gefum upp afhendingartíma.
Þarftu aðstoð við val á lausn?
Sendu okkur fjölda og stærðir kapla, dýpi, fjölda tenginga og upplýsingar um umferðarálag og við förum yfir hvað er til á lager, hvað þarf að sérpanta og hvernig rör, brunnar og hlerar passa saman.