Málmsteypan býður heildstætt úrval lagna og tengihluta fyrir uppbyggingu, viðhald og endurnýjun hitaveitukerfa. Úrvalið nær yfir foreinangruð stálrör, sveigjanleg IsoPex-rör, hné, té, minnkanir, loka, hólka og fylgihluti fyrir frágang samskeyta.
Við vinnum með Isoplus, einum stærsta framleiðanda foreinangraðra lagnakerfa í Evrópu, og þjónustum veitufyrirtæki, sveitarfélög, verktaka og hönnuði. Markmiðið er að einfalda undirbúning og innkaup með heildstæðu vöruframboði, tæknilegri aðstoð og öruggri afhendingu.
Val á lausn tekur mið af flæði, hitastigi, þrýstingi, lagnalengd og jarðvegsaðstæðum. Taflan sýnir helstu hluta kerfisins, notkun þeirra og uppbyggingu.
| Hluti kerfis | Notkun | Stærðir og lengdir | Bygging | Útfærslur |
|---|---|---|---|---|
| Foreinangruð stálrör | Dreifi- og flutningskerfi hitaveitna | 6, 12 og 16 m lengdir | Stál + PUR-frauð + PEHD-kápa | Fjölbreyttar stærðir og einangrunarflokkar |
| Fittings | Stefnu-, hæðar- og stærðarbreytingar | Fylgja stærðum rörakerfisins | Stál + PUR + PEHD, eins og rörin | Hné, bein té, yfirté og minnkanir |
| Lokar | Skipting kerfis í rekstrarsvæði | Mismunandi stærðir | Foreinangraðir spindillokar í stálkerfi | Spindilframlengingar eftir lagnadýpi |
| IsoPex | Heimtaugar, minni dreifikerfi og tengingar | Lengjur eða rúllur | Sveigjanlegt PEX, foreinangrað | Mismunandi þrýsti- og einangrunarflokkar |
| Hólkar og fylgihlutir | Lokun, einangrun og frágangur samskeyta | Eftir kápuþvermáli | Krumpu-, rafsuðu-, breyti- og blindhólkar | Endakrumpur, frauð, festur og suðuendar |
Foreinangruð stálrör, tengihlutir og lokar frá Isoplus mynda samfellt kerfi þar sem stálrör, PUR-einangrun og ytri PEHD-kápa halda áfram yfir hverja beygju, stærðarbreytingu og loka.
Foreinangruð stálrör eru notuð til að flytja heitt vatn í dreifi- og flutningskerfum hitaveitna. Samfelld einangrun dregur úr varmatapi og ytri kápan ver stálrörið og einangrunina allan líftíma kerfisins.
Rörin eru afhent tilbúin til lagningar og eru stálendar soðnir saman á verkstað áður en gengið er frá samskeytunum með hólkum og einangrun. Hægt er að velja mismunandi þykkt einangrunar út frá hitastigi, rekstrarskilyrðum og kröfum um varmatap.
Einangruð hné eru notuð þar sem breyta þarf stefnu lagnarinnar. Algengustu útfærslurnar eru 45° og 90°, en einnig er hægt að fá hné í öðrum gráðum eftir þörfum verkefnisins. Té-stykki tengja greinar inn á stofnlögn: bein té henta þar sem greinin getur legið í sömu hæð og stofnlögnin, en yfirté eru notuð í tvöföldum kerfum þegar greinin þarf að fara yfir aðliggjandi rör.
Minnkanir tengja saman rör með mismunandi þvermál og tryggja samfellda tengingu þegar stærð stofnlagnar breytist eða minni grein tengist stærra dreifikerfi. Þær fást einangraðar með kápu sem fellur að viðkomandi rörastærðum, og einnig sem óeinangraðar stálminnkanir þar sem gengið er frá einangrun á verkstað. Við lagningu tengihluta þarf að taka mið af hitaþenslu, jarðvegsálagi og staðsetningu fastra punkta.
Lokar gera kleift að skipta hitaveitukerfinu upp í rekstrarsvæði og loka einstökum lögnum vegna viðhalds, breytinga eða bilana. Rétt staðsetning loka einfaldar rekstur og getur dregið úr því svæði sem þarf að taka úr notkun.
Foreinangraðir spindillokar eru innbyggðir í stálrörakerfið og halda einangrun og ytri kápu samfelldri yfir lokann. Einnig eru fáanlegir jarðlokar og lokalausnir fyrir IsoPex-kerfi.
Kerfið getur einnig verið útbúið með eftirlitsþráðum sem gera kleift að vakta ástand lagnarinnar og greina raka eða leka í einangrunarkerfinu.
IsoPex eru sveigjanleg foreinangruð PEX-rör sem henta sérstaklega fyrir heimtaugar, minni dreifikerfi og tengingar þar sem sveigjanleiki og hröð uppsetning skipta máli.
Rörin eru afhent í lengjum eða rúllum og hægt er að leggja þau eftir mjúkum beygjum án þess að nota sérstök hné við hverja stefnubreytingu. Þannig má fækka samskeytum, stytta uppsetningartíma og laga lagnaleiðina að aðstæðum á verkstað.
IsoPex-rör eru fáanleg í mismunandi stærðum, þrýstiflokkum og einangrunarútfærslum. Með kerfinu fást einnig tengistykki, beygjur, té, samtengi, suðuendar og annar búnaður sem þarf til að tengja rörin við stálkerfi eða annan lokabúnað.
Eftir að stálendar foreinangraðra röra hafa verið soðnir saman þarf að loka og einangra samskeytið. Réttur frágangur kemur í veg fyrir að vatn og raki komist inn í einangrunina og tryggir að hitavörn og ytri kápa verði samfelld yfir tenginguna.
Málmsteypan býður mismunandi gerðir hólka eftir rörastærð, gerð tengingar og aðstæðum á verkstað: hefðbundna hólka fyrir bein samskeyti, krumpuhólka, rafsuðuhólka, breytihólka fyrir mismunandi kápuþvermál, blindhólka fyrir lokaða enda, opna hólka fyrir viðgerðir og sérlausnir og lengri hólka fyrir þana og stærri tengingar.
Eftir að hólkurinn hefur verið þéttur er holrýmið fyllt með einangrunarfrauði svo hitavörn og ytri kápa verði samfelld yfir tenginguna.
Úrvalið nær meðal annars yfir endakrumpur sem loka einangruninni við rörenda, einangrunarfrauð fyrir samskeyti, frauðplötur til að taka við hreyfingum við hné og aðra þenslustaði, festur og fastapunkta, suðuenda og tengistykki, þétti- og viðgerðarefni, viðvörunarborða og merkingar, ásamt upphitunarþráðum og búnaði fyrir frágang hólka.
Rétt val og uppsetning fylgihluta er mikilvægur hluti af heildarkerfinu og hefur bein áhrif á endingu og rekstraröryggi lagnarinnar.
Frágangur hólks, þétting og frauðun þurfa að fylgja leiðbeiningum framleiðanda svo samskeytið veiti sömu vörn og aðrir hlutar kerfisins.
Sérstaklega þarf að huga að hitaþenslu, þéttingu samskeyta, vörn rörenda og þeim kröftum sem geta myndast við hitabreytingar.
Val á hitaveitukerfi ræðst meðal annars af flæði, hitastigi, þrýstingi, lagnalengd, jarðvegsaðstæðum og kröfum um orkunýtni og rekstraröryggi. Málmsteypan aðstoðar veitufyrirtæki, sveitarfélög, verktaka og hönnuði við að yfirfara efnislista, velja réttar rörastærðir og einangrunarflokka og tryggja að allir nauðsynlegir tengihlutir og fylgihlutir fylgi verkefninu.