Niðurfall 198×198 (St 160) – slétt
001210
Niðurföll og ristar frá Málmsteypunni eru
steypt úr endurunnu brotajárni sem safnast hér á Íslandi. Með því að nýta
brotajárn sem fellur til á Íslandi og endurnýjanlega orku er kolefnisspor
framleiðslunnar margfalt lægra en hjá sambærilegum innfluttum vörum.
Niðurföllin og ristarnar eru hönnuð til að standast mikið álag og krefjandi
íslenskar aðstæður. Þau uppfylla efnisstaðal ISO 185 Grade 200 og eru fáanleg
í mismunandi stærðum og gerðum. Með yfir 60 ára reynslu í framleiðslu
brunnloka, niðurfalla og ristna er Málmsteypan traustur samstarfsaðili
sveitarfélaga, verktaka og byggingaraðila sem krefjast áreiðanlegra og
endingargóðra lausna.