




Rennustokkar MAXI frá Hydrotec eru rennustokkakerfi fyrir yfirborðsfrárennsli, framleitt úr þrýstiþolnu steypuefni með dúktíl-járns brúnarvörn sem eykur slitþol og stöðugleika. Grindur kerfisins eru með skrúfulausu læsingarkerfi sem tryggir örugga festu og einfalt viðhald.
Kerfið er vottað samkvæmt EN 1433 og uppfyllir alla helstu evrópska og alþjóðlega staðla fyrir rennustokka. MAXI er fáanlegt í burðarflokkum C250–F900 og í nokkrum nafnbreiddum (t.d. 100, 150, 200 og 300 mm), með tilheyrandi aukahlutum fyrir útrennsli, horn og greinar.
Rennustokkarnir henta fyrir fjölbreytt notkunarsvæði, allt frá gangstéttum og bílastæðum upp í þungaflutnings- og iðnaðarsvæði, vegi og flugvelli þar sem krafist er mikillar burðargetu og áreiðanlegs vatnsfrárennslis.Rennustokkar eru sérpöntunar vara svo endilega hafa samband til að fá frekari upplýsingar.
| Staðall | EN 1433 |
| Styrkleiki | C250 - F900 |