Festihulsa 60 mm

000244

Málmsteypa Þorgríms framleiðir traustar festihulsur fyrir rör, til dæmis undir umferðarmerki, girðingar og annan búnað. Festihulsur eru einföld og endingargóð lausn þar sem mikilvægt er að tryggja sterkan frágang og auðvelt viðhald.

Hulsurnar eru reknar niður í þjappaða grúsarfyllingu og sitja í plani við yfirborð. Ef tjón verður, til dæmis ef ekið er á merki, er oftast nóg að skipta um rörið án jarðrasks.

Festihulsurnar eru einnig þekktar sem Þorgrímsfætur og koma með festiró og herpihólk sem halda rörinu tryggilega föstu.

Eiginleikar vöru
EfniSteypujárn
Lengd900 mm
StaðallISO 185 Grade 200
Þyngd24 kg
FramleiðandiMálmsteypan
Íslensk framleiðsla
Nafnvídd (DN)75
Tegund vöruÞorgrímsfótur

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum