DRENRÖR OD110 HDPE 220° SN8 6m MEÐ TENGIMÚFFU

2410110110

Einveggja drenrör er hagkvæm og létt lausn fyrir jarðvegsframræslu og húsdren, með SN8 stífniflokk sem dugar fyrir langflest verkefni — þar á meðal dýpri lagnir og lagnir undir léttu umferðarálagi. Pípan er bylgjulaga bæði að innan og utan og rifuð/götuð svo grunnvatn eigi greiða leið inn í rörið. Þetta er staðalvaran okkar fyrir drenrör og hentar vel í kringum hús, í landbúnaðarframræslu og í flest almenn framræsluverkefni.

Kostir

  • Lágt verð og lítil þyngd – auðveld í meðförum og flutningi
  • SN8 stífniflokkur – dugar fyrir langflest verkefni, líka dýpri lagnir
  • Sveigjanleg, hentar vel í óbeinum jarðvegi
  • Hálfhrings-götun (heilt/óskert að neðan) – vatn flæðir að útrás í stað þess að leka aftur út í jarðveg á lágpunktum

Hentar í

  • Húsdren og grunnframræslu húsa
  • Landbúnaðarframræslu
  • Almenn framræsluverkefni, þ.m.t. dýpri lagnir og lagnir undir léttu umferðarálagi
Eiginleikar vöru
Tegund vöru Drenrör
Framleiðandi Kaczmarek
Höggþol 450 N
Stífnistuðull (SN) 8
Tengiaðferð Múffa án þéttihrings
Ytra þvermál (OD) 110 mm
Lengd 6 m
Staðall EN 61386-24
Opnun (drenrör) 220°

Karfan þín

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum