Flotniðurfall 300×300 (St 240)
001310
Flotniðurfall er hannað fyrir notkun í
malbikuðum flötum þar sem þörf er á öruggri og endingargóðri
frárennslislausn. Kanturinn er sérstaklega hannaður þannig að hann flýtur í
malbikinu, sem tryggir góða aðlögun að yfirborðinu og jafna álagsdreifingu.
Flotniðurfallið hentar vel í götur, bílastæði og önnur svæði með miklu álagi.
Niðurföll frá Málmsteypunni eru steypt úr endurunnu brotajárni sem safnast
hér á Íslandi. Með notkun innlends brotajárns og endurnýjanlegrar orku hafa
þau verulega lægra kolefnisspor en sambærilegar innfluttar vörur.