Hjámiðjuniðurfall 300×300 mm er slétt
flotniðurfall með hjámiðjustút og flotkraga, hannað fyrir snyrtilegan og
nákvæman frágang í yfirborði. Niðurfallið situr í yfirborði malbiks og er
stillanlegt á fjóra vegu, sem tryggir rétta afstöðu og betri frágang við
uppsetningu. Það er ætlað til notkunar í 200 mm og 250 mm rör og hentar vel
þar sem krafist er áreiðanlegrar lausnar fyrir yfirborðsfrárennsli.