Hjá Málmsteypunni fæst heildstætt vöruframboð fyrir fráveitu. Úrvalið nær yfir rör, tengi, brunna, sandföng og lausnir fyrir miðlun ofanvatns, hvort sem um er að ræða minni lagnavinnu eða umfangsmikil innviðaverk.
Við vinnum náið með verktökum, sveitarfélögum, veitufyrirtækjum og hönnuðum. Markmiðið er að einfalda undirbúning og innkaup með góðu vöruúrvali, sterkum lager og aðstoð sem nýtist frá fyrstu yfirferð til afhendingar.
Málmsteypan býður rörakerfi fyrir skólp, regnvatn, dren og aðrar lagnir í jörðu. Úrvalið nær frá hefðbundnum tengilögnum við hús yfir í stór fráveitukerfi fyrir sveitarfélög, veitur og umfangsmikil innviðaverk.
Með fjölbreyttu úrvali röra, brunna og tengihluta er hægt að velja lausn sem tekur mið af notkun, lagnastærð, dýpi, jarðvegi og álagi á hverjum stað.
K2-Kan eru tvíveggja PP-rör, rifflað að utan til að þola álag og slétt að innan til að tryggja gott flæði. Rörin eru ætluð fyrir fráveitu og ofanvatn í byggingar-, sveitarfélaga- og innviðaverkefnum.
K2-rör eru fáanleg í stærðum frá 150–1.000 mm að innanmáli og K2 XXL-rör frá 1.000–2.400 mm. Einnig er boðið upp á tengihluti og sérlausnir til að tengja rörin saman og laga kerfið að stefnu, hæð og öðrum aðstæðum verkefnisins.
Stærðir allt að 600 mm eru að jafnaði til á lager. Stærri rör og tengihlutir eru sérpantaðir og er almennur afhendingartími 2–4 vikur.
KG eru slétt PP-rör sem tryggja gott flæði og eru ætluð fyrir fráveitu og ofanvatn í byggingar-, sveitarfélaga- og innviðaverkefnum.
KG-rör eru fáanleg í stærðum allt að 200 mm og tengihlutir í stærðum allt að 400 mm. Boðið er upp á fjölbreytt úrval tengihluta til að tengja rörin saman og laga kerfið að stefnu, hæð og öðrum aðstæðum verkefnisins.
Algengustu stærðir eru að jafnaði til á lager, en stærri rör og tengihlutir eru sérpantaðir.
Málmsteypan býður fjölbreytt úrval regn- og skólpbrunna auk sandfanga í mismunandi stærðum og útfærslum. Brunnar veita aðgengi að lögnum og tengja þær saman, en sandföng safna sandi og seti úr yfirborðsvatni og draga þannig úr hættu á stíflum í fráveitukerfinu.
Málmsteypan býður fjölbreytt úrval af brunnbotnum en staðlar stærðir eru í 400, 600 og 1000 að innanmáli með stútum beint í gegn eða í kross en hægt er að fá brunnbotna sniðna að þörfum. Val á stærð og útfærslu ræðst meðal annars af stærð lagna, fjölda og legu tenginga, lagnadýpi, aðgengiskröfum og því hvort þörf sé á niðurstigi í brunninn. Minni brunnar eru almennt notaðir þar sem skoðun og hreinsun fer fram frá yfirborði en stærri brunnar þar sem þörf er á meira vinnurými eða krafa um stiga.
Brunnar í 400, 600 og 1000 að innanmáli með stútum beint í gegn eða í kross fyrir lagnir frá 150–400 mm eru almennt til á lager hjá Málmsteypunni. Einnig eru fáanlegir brunnar án stúta sem hægt er að bora inn á eftir þeirri stærð, stefnu og hæð tenginga sem verkefnið krefst. Þetta veitir sveigjanleika þegar laga þarf staðlaðan brunn að aðstæðum á verkstað.
Brunnbotnar af lager eru með svokölluðum OD-stútum, þar sem stærð stútsins miðast við ytra þvermál hans. Þegar tengja á rör sem eru stærðargreind eftir innra þvermáli eins og K2 Rör eru notuð viðeigandi breytistykki. Einnig er hægt að setja minnkanir eða beygjur beint við brunnstútinn þegar aðstæður leyfa en með þessu er hægt að laga staðlaðar lagervörur að ólíkum rörakerfum, stærðum og aðstæðum.
Hægt er að sérsmíða allar gerðir brunnbotna hjá Málmsteypunni. Brunnar geta verið allt að 2.400 mm að innanmáli og tekið rör allt að 2.000 mm í þvermál. Brunnar sem eru stærri en 1.000 mm að innanmáli eru afhentir í heilu lagi með keilu.
Brunnar sem eru 1.000 mm að innanmáli og með stúta stærri en 400 mm eru sérsmíðaðir samkvæmt rörastærðum, tengihornum, hæðarkótum og öðrum forsendum viðkomandi verkefnis.
Almennur afhendingartími á sérpöntuðum og sérsmíðuðum brunnum er 4–6 vikur.
Aðferðin við hæðaraðlögun ræðst af stærð og uppbyggingu brunnsins. 400 og 600 brunnar að innanmáli eru hækkaðir með upphækkunarröri sem er sagað í rétta lengd áður en gengið er frá yfirborði með topphringi og brunnloki.
Í 1000 mm brunnum eru notaðar svokallaðar brunnupphækkanir með innbygðum stiga og múffu sem eru fáanlegar í 25, 50, 75 og 100 cm hæð. Þeim er staflað þar til fyrirhugaðri heildarhæð er náð.
Efst á 1000 mm brunni er brunnkeila sem minnkar innanmálið niður í 600 mm aðgangsop. Keilan er með innbyggðum stiga og hægt er að saga allt að 25 cm af henni til að fínstilla hæðina.
Á milli allra eininga í uppbyggingu brunnsins skal nota brunngúmmi sem tryggir þéttni brunnsins og hann sé vantsheldur.
Við toppfrágang í götu er almennt notaður 170 mm hár topphringur í stærðinni 1100/600 mm. Hann er nauðsynlegur svo hægt sé að tryggja álag fyrir D400 sem krafist er í umferðargötum. Ef ekki er þörf á D400 álagi er hægt að setja karminn og lokið beint á brunnin, við mælum alltaf með eða setja steypta upphækkunarhringi í þeim tilvikum.
Sandföng taka við yfirborðsvatni og halda eftir sandi, seti og öðrum föstum efnum áður en vatnið rennur áfram inn í fráveitukerfið. Þannig draga þau úr því magni óhreininda sem berst inn í lagnirnar, minnka hættu á uppsöfnun og stíflum og auðvelda hreinsun og reglubundið viðhald.
Málmsteypan býður sandföng í mismunandi stærðum og útfærslum en val á sandfangi ræðst einkum af áætluðu vatnsmagni, stærð tengilagnar, þörf fyrir söfnunarrými og aðgengi til tæmingar og hreinsunar.
Sandföngin eru með stillanlegu teleskópröri sem má hækka að þörfum. Ef þörf er á vatnslás, er hægt að útbúa hann með viðeigandi beygjum. Málmsteypan framleiðir einnig niðurföll og kúluristar sem passa beint ofan í sandföngin og mynda þannig heildstæða lausn.
Málmsteypan býður fjölbreytt úrval samtengja til að tengja saman rör af mismunandi gerðum, úr ólíkum efnum og með mismunandi þvermál. Samtengin henta bæði við nýlagnir og við viðgerðir eða endurnýjun eldri lagnakerfa.
MAC- og MSC-samtengi eru sveigjanleg tengi sem henta þegar hefðbundnar múffutengingar eiga ekki við. Þau eru meðal annars notuð við viðgerðir og endurnýjun lagnakerfa til að tengja saman rör úr ólíkum efnum eða með mismunandi ytra þvermál, svo sem nýjar plastlagnir við eldri lagnir úr steypu eða steinleir.
Samtengin eru úr EPDM-gúmmíi með ryðfríum stálklemmum og fást fyrir fjölbreytt rörþvermál. Sumar útfærslur geta tengt saman rör þótt töluverður munur sé á ytra þvermáli þeirra.
renbox er einingakerfi sem tekur við ofanvatni og geymir það tímabundið neðanjarðar. Kerfið er byggt úr HYDRO-BOX einingum sem hægt er að laga að því rúmmáli, rými og frárennsli sem verkefnið krefst.
Drenbox-kerfið er sett saman úr HYDRO-BOX einingum í mismunandi stærðum. Einingarnar eru tengdar saman með tengiklemmum og raðað upp í þá lengd, breidd og hæð sem þarf til að ná tilskildu miðlunarrými. Hliðar- og endalok loka kerfinu og sérstakar tengingar eru notaðar fyrir inn- og útrásir. Einnig er gert ráð fyrir aðgengi til skoðunar og hreinsunar.
Við sitrun er kerfið umlukið vatnsgegndræpum jarðvegsdúk. Dúkurinn kemur í veg fyrir að jarðvegsefni berist inn í einingarnar en hleypir vatninu út í nærliggjandi jarðveg. Við lokaða miðlun er kerfið hins vegar umlukið þéttum dúk. Þá safnast vatnið í kerfinu og rennur áfram um stýrða útrás.