Karfan þín er tóm
Málmsteypan er elsta starfandi endurvinnslufyrirtæki Íslands og hefur verið í fararbroddi steypuiðnaðarins frá stofnun árið 1944. Starfsemin hófst í litlum skúr á Laugamýri í Reykjavík á tímum mikils vöruskorts eftir síðari heimsstyrjöld. Síðan þá hefur Málmsteypan þróast í nútímalega framleiðslueiningu með áratugalanga reynslu, þekkingu og áherslu á gæði og áreiðanleika.
Árin 2022–2023 var fjárfest stórlega í framleiðslutækjum og ferlum til að auka framleiðslugetu, bæta orkunýtingu og minnka kolefnisspor. Í dag starfa 15 manns við framleiðsluna og árlega eru framleidd yfir 13.000 vörur úr endurunnu járni.
Málmsteypan var stofnun árið 1944 og fagnaði því 80 ára afmæli 2024. Upphafið var einfalt, starfsemin hófst í litlum skúr á Laugamýrisbletti í Reykjavík á tímum mikils vöruskorts í kjölfar stríðsins.
Ráðist var í miklar framkvæmdir árin 2022-2023 sem hafa skilað aukinni framleiðslugetu, meiri hagkvæmni og lægra kolefnisfótspori.
Á Íslandi verða til tugþúsundir tonna af brotajárni á hverju ári. Stór hluti hans er fluttur úr landi til bræðslu í Asíu eða Austur-Evrópu, með miklum flutnings- og umhverfiskostnaði.
Málmsteypan lokar hringnum með því að halda endurvinnslunni innanlands:
• Við tökum á móti brotajárni frá íslenskum aðilum
• Við endurvinnum hann hér á landi með endurnýjanlegri orku
• Við breytum honum í nýja vöru og verðmæti fyrir íslenskt samfélag
Þannig tryggjum við að auðlindir nýtist á ábyrgan hátt og verðmætasköpunin verði innanlands.
Karfan þín er tóm