Niðurfall 198×198 (St 110) – rennusteins
Niðurföll og ristar frá Málmsteypunni eru steypt úr endurunnu brotajárni sem safnast hér á Íslandi. Með því að nýta brotajárn sem fellur til á Íslandi og endurnýjanlega orku er kolefnisspor framleiðslunnar margfalt lægra en hjá sambærilegum innfluttum vörum. Niðurföllin og ristarnar eru hönnuð til að standast mikið álag og krefjandi íslenskar aðstæður. Þau uppfylla efnisstaðal ISO 185 Grade 200 og eru fáanleg í mismunandi stærðum og gerðum. Með yfir 60 ára reynslu í framleiðslu brunnloka, niðurfalla og ristna er Málmsteypan traustur samstarfsaðili sveitarfélaga, verktaka og byggingaraðila sem krefjast áreiðanlegra og endingargóðra lausna.